Fylkir án stiga á botninum

Fylkismaðurinn Ragnar Bragi Sveinsson í baráttu við Mikkel Maigaard og …
Fylkismaðurinn Ragnar Bragi Sveinsson í baráttu við Mikkel Maigaard og Aron Bjarnason í leiknum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

ÍBV bar sigurorð af Fylki, 3:0, í þriðju umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu á Floridana-vellinum í Árbænum í kvöld. Eyjamenn hafa þar af leiðandi sjö stig eftir fjórar umferðir á meðan Fylkir er án stiga á botni deildarinnar.

ÍBV fékk óskabyrjun þegar Mikkel Maigaard Jakobsen kom liðinu yfir strax á þriðju mínútu leiksins. Sindri Snær Magnússon tvöfaldaði svo forystu ÍBV fimm mínútum síðar. Sigurður Grétar Benónýsson innsiglaði svo sigur ÍBV með marki sínu á 86. mínútu leiksins. 

Fylkir 0:3 ÍBV opna loka
90. mín. Garðar Jóhannsson (Fylkir) á skalla sem fer framhjá
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka