Grótta og Fram tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu með sigrum í viðureignum sínum í kvöld. Grótta átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Augnablik að velli, en lokatölur í þeim leik urðu 6:1 Gróttu í vil. Fram vann svo 2:0 sigur gegn HK.
21.00. Leik lokið í Laugardalnum með 2:0 sigri Fram.
20.45. Leik lokið í Safamýrinni með öruggum 6:1 sigri Gróttu sem er þar af leiðandi komin áfram í 16 liða úrslit keppninnar.
20.45. MARK. Grótta - Augnablik, 6:1. Pétur Steinn Þorsteinsson rekur síðasta naglann í líkkistu Augnabliks með sjötta marki Gróttu í leiknum.
20.33. MARK. Fram - HK, 2:0. Ivan Parlov kemur Fram tveimur mörkum yfir, en Parlov er nýkominn inná sem varamaður.
20.28. MARK. Grótta - Augnablik. Grótta gengur á lagið og Markús Andri Sigurðsson skorar annað mark sitt í leiknum og fimmta mark Gróttu.
20.07. MARK. Grótta - Augnablik, 4:1. Viktor Smári Segatta fer langt með að tryggja Gróttu sæti í 16 liða úrslitum keppninnar með fjórða marki liðsins.
20.03. MARK. Grótta - Augnablik, 3:1. Líkt og í fyrri hálfleik skorar Grótta á þriðju mínútu hálfleiksins. Markús Andri Sigurðsson tvöfaldar forystu Gróttu og spurning hvort Augnablki takist að koma til baka.
20.00. Hálfleikur í leik Fram og HK. Staðan er 1:0 fyrir Fram, en það var Ivan Bubalo sem skoraði mark Fram.
19.45. Hálfleikur í leik Gróttu og Augnabliks. Grótta er 2:1 yfir í hálfleik.
19.44. MARK. Fram - HK, 1:0. Ivan Bubalo kemur Fram yfir eftir frábæran undirbrúning frá Helga Guðjónssyni. Helgi átti góðan sprett upp vinstri vænginn þar sem hann lék á nokkra varnarmenn HK. Helgi sendi síðan boltann á Bubalo sem skoraði með skoti af stuttu færi.
19.41. Sigurði Sæberg Þorsteinssyni, leikmanni Augnabliks, er vikið af velli með rauðu spjaldi.
19.21. HK er að sækja í sig veðrið í Laugardalnum. Ísak Óli Helgason fær aukaspyrnu í góðu skotfæri, en skot hans úr aukaspyrnunni er beint á markið og Stefano Layeni, markvöður Fram ver.
19.20. MARK. Grótta - Augnablik, 2:1. Markaveislan heldur áfram í Safamýrinni. Grótta er komin yfir á nýjan leik og að þessu sinni er það Ásgrímur Gunnarsson sem skorar fyrir Seltirninga.
19.17. Fram hefur leikinn betur í Laugardalnum og hefur fengið tvö fín færi á upphafsmínútum leiksins.
19.15. Leikur Fram og HK er hafinn.
19.04. MARK. Grótta - Augnablik, 1:1. Adam er ekki lengi í paradís hjá Gróttu. Hreinn Bergs jafnar metin fyrir Augnablik einungis mínútu eftir að Grótta komst yfir. Augnablik ætlar greinilega að láta Gróttu hafa fyrir hlutunum í þessum leik.
19.03. MARK. Grótta - Augnablik, 1:0. Óskabyrjun hjá Gróttu á heimavelli sínum til bráðabirgða í Safamýrinni. Pétur Theódór Árnason kemur Gróttu yfir strax í upphafi leiksins.
19.00. Leikur Gróttu og Augnabliks er hafinn.
Byrjunarlið Gróttu: Sveinbjörn Ingi Grímsson - Arnar Þór Helgason, Guðmundur Marteinn Hannesson, Snorri Páll Blöndal, Pétur Theódór Árnason, Pétur Steinn Þorsteinsson, Halldór Kristján Baldursson, Bjarni Rögnvaldsson, Ásgrímur Gunnarsson, Viktor Smári Segatta, Markús Andri Sigurðsson,
Byrjunarlið Augnabliks: Gunnar Geir Gunnlaugsson - Hreinn Bergs, Andri Valgeirsson, Styrmir Másson, Jón Viðar Guðmundsson, Andri Þór Helgason, Bjarki Eldjárn Kristjánsson, Hrafnkell Freyr Ágústsson, Jón Björgvin Hermannsson, Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Atli Valsson.
Byrjunarlið Fram: Stefano Layeni - Sigurpáll Melberg Pálsson, Indriði Áki Þorláksson, Ivan Parlov, Hlynur Atli Magnússon, Ingiberg Ólafur Jónsson, Arnór Daði Aðalsteinsson, Hafþór Þrastarson, Ivan Bubalo, Helgi Guðjónsson, Rúrik Andri Þorfinnsson.
Byrjunarlið HK: Arnar Freyr Ólafsson - Guðmundur Þór Júlíusson, Ingimar Elí Hlynsson, Ragnar Leósson, Ísak Óli Helgason, Teitur Pétursson, Atli Már Þorbergsson, Árni Arnarson, Jökull I. Elísabetarson, Reynir Haraldsson, Fannar Freyr Gíslason.