FH sem er nýliði í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu er enn taplaust eftir fyrstu þrjár umferð deildarinnar, en liðið lagði KR að velli, 1:0, í leik liðanna á Alvogen-vellinum í kvöld.
Það var Guðný Árnadóttir sem skoraði sigurmark FH á 14. mínútu leiksins með skoti úr aukaspyrnu af löngu færi.
FH er með sjö stig eftir þennan sigur, en liðið hefur jafn mörg stig og Stjarnan sem trónir á toppi deildarinnar. KR er hins vegar með eitt stig í næstneðsta sæti deildarinnar.
KR | 0:1 | FH | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið Leik lokið með 1:0 sigri FH. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |