Selfoss komst á sigurbraut á nýjan leik þegar liðið hafði betur 2:0 gegn nýliðum ÍA í þriðju umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.
Lauren Elizabeth Hughes kom Selfyssingum yfir eftir hálftíma leik og Eva Lind Elíasdóttir skoraði seinna markið á 73. mínútu.
Selfoss er komið með sex stig eftir þennan sigur og situr í þriðja sæti deildarinnar stigi á eftir toppliðunum, Stjörnunni og FH. ÍA situr aftur á móti á botni deildarinnar, en liðið án stiga eftir að hafa leikið þrjá leiki.
ÍA | 0:2 | Selfoss | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið Leik lokið með 2:0 sigri Selfoss. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |