Eyjamenn unnu afar öruggan sigur á Huginn frá Seyðisfirði í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins en leikurinn fór 2:0 en sigurinn hefði hæglega getað verið stærri.
Eyjamenn sköpuðu sér helling af færum í fyrri hálfleik en komu boltanum ekki í netið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Það var þó Charles Vernam sem braut ísinn einungis 50 sekúndur voru búnar af seinni hálfleik en þá fékk hann sending frá Simon Smidt inn fyrir sem hann afgreiddi snyrtilega í netið.
Bjarni Gunnarsson bætti svo við marki úr víti á 82. mínútu.
Eyjamenn verða því í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit á föstudaginn.
ÍBV | 2:0 | Huginn | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Marko Nikolic (Huginn) á skot sem er varið | ||||
Augnablik — sæki gögn... |