Hitti boltann vel

„Jú, jú, ég er alveg sáttur við minn leik,“ sagði Birnir Snær Ingason, hæverskur eftir 5:0 sigur Fjölnis á Þrótti í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Birnir Snær skoraði tvívegis og átti frábæran leik.

„Ég hitti boltann mjög vel þegar ég gerði fyrra markið og það var gaman að sjá hann inni. Við spiluðum vel, sérstaklega í seinni hálfleiknum, en Þróttarar hefðu getað komist yfir snemma í fyrri hálfeliknum,“ sagði besti maður vallarins kampakátur í leikslok.

Hann vildi lítið gefa út á að liðið væri í öðru sæti deildarinnar. „Við erum með okkar markmið fyrir sumarið og við erum á réttu róli,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert