Breiðablik situr á toppi Pepsi-deildar kvenna, í bili a.m.k. eftir nauman baráttusigur gegn Fylki í dag. Lokatölur urðu 1:0 fyrir Breiðablik og Íslandsmeistararnir eru enn taplausir í deildinni.
Esther Rós Arnarsdóttir skoraði sigurmarkið í seinni hálfleik eftir undirbúning Fanndísar Friðriksdóttur og Svövu Rósar Guðmundsdóttur.
Fimmtu umferðinni lýkur með stórleik Vals og Stjörnunnar sem verður í beinni lýsingu á mbl.is.
Fylkir | 0:1 | Breiðablik | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
90. mín. Leik lokið | ||||
Augnablik — sæki gögn... |