Jafnt í Keflavík

Jónas Guðni Sævarsson og félagar taka á móti Leikni í …
Jónas Guðni Sævarsson og félagar taka á móti Leikni í dag. Skapti Hallgrímsson

Keflavík og Leiknir úr Reykjavík gerðu markalaust jafntefli í 11. umferð Inkasso-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Brynjar Hlöðversson úr Leikni fékk rautt spjald undir lok leiks.

Ekkert var skorað í leiknum í dag en undir lok leiksins fékk Brynjar Hlöðversson, leikmaður Leiknis, að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Úrslitin þýða það að Leiknir R. er í 3. sæti deildarinnar með 20 stig á meðan Keflavík er með 18 stig í 5. sæti.

Leik lokið. Keflavík og Leiknir skilja jöfn í dag. Markalaust jafntefli er staðreynd.

90. RAUTT SPJALD!! Brynjar Hlöðversson fær að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt og því eru Leiknismenn einum færi síðustu mínúturnar.

46. Síðari hálfleikur er hafinn.

45. Kominn hálfleikur í bragðdaufum leik suður með sjó.

1. Leikurinn er hafinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert