Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson er í viðræðum við Stjörnuna en hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann vilji yfirgefa KR.
Mbl.is hafði sambandi við Hólmbert sem staðfesti að hann væri í viðræðum. „Ég er að skoða mín mál. Það er ekkert ákveðið ennþá, þetta er bara í farvegi,“ sagði Hólmbert við mbl.is í morgun.
Spurður hvort fleiri valkostir væru í stöðunni sagði Hólmbert svo ekki vera. Valið stæði milli þess að fara í Stjörnuna eða vera áfram hjá KR.
KR hefur samþykkt tilboð Stjörnunnar í Hólmbert að sögn Almars Guðmundssonar, formanns knattspyrnudeildar Stjörnunnar. Almar gat ekki gefið meira upp að svo stöddu en leikmannaglugginn lokast næsta mánudag.
Hólmbert kom til KR í júlí síðasta sumar en hann var áður á mála hjá Celtic í Skotlandi, og var lánaður þaðan til Bröndby í Danmörku síðasta vetur. Hólmbert, sem er 23 ára, lék með HK til 18 ára aldurs og síðan með Fram.