Miðasala á fyrsta heimaleik íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í undankeppni HM 2018 hefst kl. 12 í dag.
Um er að ræða leik Íslands og Finnlands á Laugardalsvelli fimmtudagskvöldið 6. október. Þetta verður annar leikur Íslands í undankeppninni en sá fyrsti er gegn Úkraínu ytra á mánudagskvöld.
Miðasalan fer fram á midi.is.