Þorvaldur Örlygsson þjálfari hefur valið 18 leikmanna hóp fyrir undankeppni Evrópumóts U19-landsliða karla í knattspyrnu. Sjö leikmannanna eru á mála hjá erlendum félagsliðum.
Riðill Íslands í undankeppninni er leikinn í Úkraínu dagana 6.-11. október. Ísland leikur fyrst við heimamenn, svo Tyrkland og loks Lettland. Í þessum fyrri hluta undankeppninnar komast tvö lið upp úr hverjum riðli áfram í seinni hlutann. Leikið er í 13 riðlum og kemst liðið með bestan árangur í 3. sæti einnig áfram á næsta stig.
Leikmannahópur Íslands:
- Dagur Austmann Hilmarsson, AB Gladsaxe (Danmörku)
- Alfons Sampsted, Breiðabliki
- Willum Þór Willumsson, Breiðabliki
- Máni Austmann Hilmarsson, FCK (Danmörku)
- Daði Freyr Arnarsson, FH
- Hörður Ingi Gunnarsson, FH
- Viktor Helgi Benediktsson, FH
- Atli Hrafn Andrason, Fulham (Englandi)
- Jón Dagur Þorsteinsson, Fulham (Englandi)
- Kolbeinn Finnsson, Groningen (Hollandi)
- Andri Þór Grétarsson, HK
- Birkir Valur Jónsson, HK
- Júlíus Magnússon, Heerenveen (Hollandi)
- Guðmundur Andri Tryggvason, KR
- Axel Óskar Andrésson, Reading (Englandi)
- Kristófer Konráðsson, Stjörnunni
- Sveinn Aron Guðjohnsen, Val
- Erlingur Agnarsson, Víkingi R.