Breiðablik fékk á sig rosalegt mark í 4:0 tapi liðsins gegn Ajax í ungmennadeild UEFA í dag.
Blikar eru úr leik eins og við sögðum frá fyrr í kvöld en liðið gat lítið gert í markinu sem kom Ajax í 2:0. Þá gerði hinn ungi og efnilegi Kaj Sierhuis sér lítið fyrir og tók klippu og setti boltann í slá og inn en markið má sjá hér að neðan.