Bjarki í Breiðholtið

Bjarki Aðalsteinsson í leik með Selfyssingum fyrir tveimur árum.
Bjarki Aðalsteinsson í leik með Selfyssingum fyrir tveimur árum. Morgunblaðið/Eva Björk

Leiknir í Reykjavík, sem leikur í 1. deild karla í knattspyrnu, hefur samið við varnarmanninn Bjarka Aðalsteinsson sem kemur í Breiðholtið frá Þór á Akureyri. Þetta kemur fram á vef Leiknis.

Bjarki er 25 ára gamall og uppalinn hjá Breiðabliki en lék með Augnabliki, Reyni í Sandgerði og Selfyssingum áður en hann kom til liðs við Þórsara fyrir síðasta tímabil. Hann hefur enn fremur spilað mikið í bandarísku háskóladeildinni undanfarin ár og lék m.a. ekkert hér á landi 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert