Viktor Jónsson er kominn í raðir Þróttar R. á nýjan leik frá Víkingi R. en hann skrifaði undir samning til þriggja ára við Þrótt.
Viktor skoraði 22 mörk í 24 mótsleikjum fyrir Þrótt þegar hann lék sem lánsmaður með liðinu árið 2015, þegar það lék í 1. deild. Hann sneri svo aftur til Víkings en náði sér ekki á strik í sumar og skoraði aðeins 1 mark í Pepsi-deildinni.
Viktor, sem er 22 ára gamall, mun leika aftur með Þrótti í næstefstu deild en liðið féll úr Pepsi-deildinni í sumar. Hann varð næstmarkahæstur í deildinni árið 2015 með 19 mörk.