„Ég er mjög spennt að læra af þeim bestu og bæta minn leik sem leikmaður og liðsfélagi. Ég hef dreymt um að spila á hæsta stigi fótboltans frá því ég var lítil stelpa og mér líst virkilega vel á að spila með Haukum í sumar,“ sagði hún í samtali við haukar.is. 

Haukar unnu 1. deildina síðasta sumar og má búast við að það verði nóg að gera hjá Tori í deild þeirra bestu.