Ragnar tekinn snemma af velli

Ragnar Sigurðsson.
Ragnar Sigurðsson. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eftir að hafa ekkert spilað í síðustu átta leikjum Fulham fékk Ragnar Sigurðsson tækifæri í byrjunarliði liðsins þegar það vann Nottingham Forest, 3:2, í ensku B-deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.

Ragnari var hins vegar skipt af velli eftir aðeins 28 mínútna leik, en þá var staðan 1:0 eftir að Forest hafði nýtt sér slæm mistök Ragnars í upphafi leiks.

Ekki lá fyrir í gærkvöld hvort Ragnar hefði meiðst og þá hve alvarlega, en næsti leikur Íslands í undankeppni HM er eftir rúmar 5 vikur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert