Stjarnan sem er ríkjandi Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna hefur fengið liðsauka, en Nótt Jónsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá FH.
Nótt er tvítugur miðjumaður sem einnig hefur leikið framar á vellinum fyrir FH sem er uppeldisfélag hennar.
Nótt lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk FH árið 2015, en hún lék átta leiki fyrir FH þegar liðið komst upp úr 1. deildinni árið 2015 og 13 leiki í efstu deild síðasta sumar.