Valur varð í kvöld Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 3:1 sigur gegn Fylki í Egilshöllinni.
Fylkir fékk óskabyrjun þegar Sæunn Rós Ríkharðsdóttir skoraði á 1. mínútu leiksins. Margrét Lára Viðarsdóttir jafnaði metin á 45. mínútu leiksins og Elín Metta Jensen innsiglaði sigur Vals með tveimur mörkum í síðari hálfleik.
Valur er því Reykjavíkurmeistari 2017 í kvenna- og karlaflokki.
Markaskorarar leiksins eru fengnir hjá fótbolti.net.