Líkt og greint var frá fyrr í dag á mbl.is lenti landsliðskonan í knattspyrnu, Hallbera Guðný Gísladóttir, í óskemmtilegri reynslu í gær er brotist var inn í íbúð hennar í Stokkhólmi þar sem hún leikur með Djurgården í efstu deild.
Frétt mbl.is: Þeir fara ekkert að koma aftur?
Þjófar létu greipar sópa og stálu meðal annars tölvu hennar. En Hallbera hefur húmor fyrir þessu öllu saman og birti í dag á Twitter mynd af lögreglumönnum við störf í íbúð hennar.
„Þeir tóku fingraför, skóför og myndir,“ sagði Hallbera við mbl.is í morgun.
Við strákarnir erum að skoða skó og fingraför sem voru skilin eftir 🕵🏻♀️ pic.twitter.com/Q8lCOF2dE4
— Hallbera Gisladottir (@HallberaGisla) February 23, 2017