Selfoss tryggði sér í dag sæti í átta liða úrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir sigur á ÍBV, 1:0, á Selfossi.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Alfi Lacalle fyrir Selfyssinga snemma í þeim seinni, en sigurinn fleytti þeim í toppsætið með 10 stig eftir leikina fimm. Tvö lið komast áfram úr riðlunum fjórum. Hallgrímur Þórðarson leikmaður ÍBV fékk rauða spjaldið á 76. mínútu.
Aðeins KR getur nú náð Selfyssingum að stigum og eru þeir því öruggir með sæti sitt í átta liða úrslitunum.