Annar Mexíkói til Vals

Valskonur fá frekari liðsauka.
Valskonur fá frekari liðsauka. mbl.is/Golli

Ariana Calderon, landsliðskona Mexíkó í knattspyrnu, er  gengin til liðs við Val en hún kemur til félagsins frá Medkila þar sem hún spilaði í norsku úrvalsdeildinni á síðasta ári.

Calderon, sem er 26 ára framherji, hefur áður leikið hér á landi en hún spilaði seinni hluta tímabilsins 2014 með ÍBV. Áður hafði hún spilað með Kokkola í Finnlandi.

Valur verður því með tvær mexíkóskar landsliðskonur í sínum röðum því í gær gekk Anisa Guajardo til liðs við Hlíðarendafélagið frá Melbourne City í Ástralíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert