Landsliðskonan Elísa Viðarsdóttir, leikmaður Vals, staðfestir í samtali við vefinn fótbolti.net að hún sé með slitið krossband í hné en hún varð fyrir meiðslum strax á upphafsmínútunum í vináttuleiknum gegn Hollendingum í síðustu viku.
Þar með er ljóst að Elísa spilar ekki með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Hollandi í sumar en mikil meiðsli hafa herjað á leikmenn landsliðsins í vetur.
„Þetta er þungt högg en þessi spil eru lögð á borðið núna og við þurfum að spila úr því,“ sagði Elísa í samtali við fótbolti.net.
Dóra María Lárusdóttir, samherji Elísu með Val, sleit krossband í leik á Algarve-cup í síðasta mánuði og verður ekki með á EM og þá varð Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, fyrir því óláni að slíta fremra krossband á sama móti en sá möguleiki til staðar að hún verði búin að ná sér áður en flautað verður til leiks á EM.
Hólmfríður Magnúsdóttir ristarbrotnaði í lok janúar, Dagný Brynjarsdóttir hefur verið að glíma við bakmeiðsli og Harpa Þorsteinsdóttir er nýbyrjað að æfa eftir barnsburð. Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska landsliðsins, heldur enn í vonina um að þær þrjár verði klárar áður en hann velur endanlegan leikmannahóp fyrir EM.