Kópavogsvöllur er þakinn snjó þegar rétt um sex klukkustundir eru þar til flautað er til leiks í 1. umderð Pepsi-deildar kvenna þar sem Breiðablik tekur á móti FH.
Snörp kuldaskil hafa gengið inn á landið og rigning þar með umbreyst skyndilega í slyddu og snjókomu, eins og fram kom á mbl.is í dag.
Magnús Böðvarsson, vallarstjóri á Kópavogsvelli, birti mynd á Twitter nú rétt í þessu en hann segir völlinn hins vegar vera í toppstandi.
Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
6 tímar i leik. Völlurinn solid. Veðrið Basic #fotboltinet pic.twitter.com/UA8QYEUvZ1
— magnus bodvarsson (@zicknut) April 27, 2017