Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik. Ingibjörg, sem er fædd árið 1997, var valin í fyrsta sinn í A-landsliðið nú á vormánuðum.
Ingibjörg hefur verið hjá Blikum frá 14 ára aldri og á að baki 107 leiki með liðinu þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul og hefur skorað í þeim tíu mörk. Hún var valin efnilegasti leikmaður Blika í fyrra, og innan herbúða félagsins ríkir mikil ánægja með samninginn.
Ingibjörg hefur jafnframt leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og lék sinn fyrsta landsleik aðeins 14 ára gömul með U17 ára landsliðinu.