Stefán Logi Magnússon, markvörður KR, verður ekki með liðinu næstu vikurnar eftir að hafa gengist undir aðgerð á hné.
Vísir greinir frá þessu í dag, en þar er haft eftir Willum Þór Þórssyni, þjálfara liðsins, að Stefán Logi hafi þurft að gangast undir bráðaaðgerð á hné í gær. Hann verði frá í að minnsta kosti mánuð vegna þess.
Sindri Snær Magnússon mun verja mark KR á meðan, en liðið er með sex stig eftir fjórar umferðir í Pepsi-deildinni.