HK/Víkingur tapaði sínum fyrstu stigum í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. HK/Víkingur fór þá í heimsókn til Keflavíkur og varð niðurstaðan 2:2 jafntefli.
Sveindís Jane Jónsdóttir jafnaði fyrir Keflavík í uppbótartíma. Margrét Sif Magnúsdóttir og Linda Líf Boama höfðu komið HK/Víkingi í 2:1 með tveimur mörkum á ellefu mínútum í seinni hálfleik, eftir að Anita Lind Daníelsdóttir kom Keflavík yfir í fyrri hálfleik.
HK/Víkingur er á toppi deildarinnar með 16 stig og Keflavík í 3. sæti með 11 stig. Á milli þeirra er Þróttur í 2. sæti með tólf stig.