Guðjón tekinn við uppeldisliðinu

Guðjón Árni Antoníusson.
Guðjón Árni Antoníusson. mbl.is/Eva Björk

Guðjón Árni Antoníusson hefur verið ráðinn þjálfari Víðis í Garði sem leikur í 2. deildinni í knattspyrnu og mun stýra liðinu út tímabilið til þess að byrja með.

Víkurfréttir greina frá, Guðjón Árni lagði skóna á hilluna í vetur eftir að hafa leikið lengst af sínum ferli með Keflavík. Hann varð bikarmeistari með liðinu árin 2004 og 2008, en spilaði einnig þrjú sumur með FH og var þar Íslandsmeistari.

Guðjón Árni hefur í vetur verið í þjálfarateymi Keflvíkinga og einnig þjálfað 2. flokk félagsins. Hann er uppalinn hjá Víði en liðið lét Bryngeir Torfason fara fyrr í mánuðinum. Víðir er í fjórða sæti 2. deildar eftir að hafa unnið sig upp úr 3. deildinni síðasta haust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert