Tveir leikmenn úr Pepsi-deild karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir í eins leiks bann á fundi aganefndar KSÍ í gær, báðir vegna fjögurra gulra spjalda.
Skotinn Robert Crawford tekur út leikbann í leiknum gegn KA-mönnum sem fer fram á Akureyri á laugardeginum um verslunarmannahelgina og Skagamaðurinn Arnar Már Guðjónsson verður í leikbanni þegar ÍA sækir topplið Vals heim á mánudagskvöldið.