Færeyski landsliðsmaðurinn Gunnar Nielsen mun ekki verja mark FH er það mætir KR í Pepsi-deild karla í knattspyrnu 31. ágúst næstkomandi. Ástæðan er sú að landsleikjahlé er á sama tíma og mun Gunnar vera í eldlínunni með Færeyjum gegn Portúgal í undankeppni HM.
Vignir Jóhannesson, varamarkmaður FH, mun þess í stað standa á milli stanganna í leiknum en hann hefur leikið fjóra bikarleiki með FH í sumar.