Kemur Valur fram hefndum?

Katrín Ásbjörnsdóttir og stöllur hjá Stjörnunni unnu leik liðanna á …
Katrín Ásbjörnsdóttir og stöllur hjá Stjörnunni unnu leik liðanna á sunnudag. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Þrír leikir eru á dagskrá Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld þar sem mikið er undir í toppbaráttunni.

Valur getur komið fram hefndum gegn Stjörnunni, en liðin mættust í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudag. Þar vann Stjarnan í uppbótartíma og leikur til úrslita, en Valur fær strax tækifæri til hefnda. Valskonur þurfa nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda í veika von sína um titilinn, en liðið er með 22 stig í 5. sætinu. Stjarnan er með 27 stig í þriðja sæti eins og Breiðablik.

Þór/KA er með fimm stiga forskot á toppnum og heimsækir botnlið Hauka í Hafnarfjörðinn. Þá fara nýliðar Grindavíkur til Eyja og heimsækja ÍBV, en Eyjakonur eru stigi á eftir Stjörnunni og Blikum og í mikilli toppbaráttu.

18.00 Haukar – Þór/KA
18.00 ÍBV – Grindavík
19.15 Stjarnan – Valur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert