Rúnar Kristins tekinn við KR á ný

Kristinn Kjærnested og Rúnar Kristinsson handsala samninginn í dag.
Kristinn Kjærnested og Rúnar Kristinsson handsala samninginn í dag. mbl.is/Andri Yrkill

Rúnar Kristinsson var nú rétt í þessu kynntur sem nýr þjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu, en hann tekur við liðinu af Willum Þór Þórssyni sem lét af störfum eftir síðasta leik í deildinni um liðna helgi. Rúnar skrifaði undir þriggja ára samning við KR.

Rúnar var ráðinn yf­ir­maður knatt­spyrnu­mála hjá KR árið 2007 og tók við þjálf­un meist­ara­flokks á miðju sumri 2010. Fram­haldið var afar far­sæll kafli í sögu KR, Íslands­meist­ara­titl­ar árin 2011 og 2013 og bikar­meist­ara­titl­ar árin 2011, 2012 og 2014.

KR lék 197 leiki und­ir stjórn Rún­ars, sigraði í 127 þeirra, gerði 26 jafn­tefli en tapaði 44. Marka­tal­an var 432:244 KR í hag.

Eftir að Rúnar lét af störfum eftir tímabilið 2014 og tók þá við Lilleström í Noregi. Hann var síðast á mála hjá Lokeren í Belgíu þaðan sem hann var rekinn í ágúst.

Viðtal við Rúnar birtist hér á mbl.is innan skamms.

Rúnar Kristinsson er kominn aftur til KR.
Rúnar Kristinsson er kominn aftur til KR. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert