Mikill hiti eftir leik í gær

Mikill hiti var í einhverjum stuðningsmönnum eftir leik.
Mikill hiti var í einhverjum stuðningsmönnum eftir leik. Ljósmynd/Skjáskot

Mikill hiti var í einhverjum stuðningsmönnum Keflavíkur og Grindavíkur eftir að fyrrnefnda liðið vann dramatískan 84:83 heimasigur í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í gær.

Urban Oman skoraði sigurkörfuna fyrir utan þriggja stiga línuna í þann mund sem leiktíminn rann út og kom til orðaskipta á milli stuðningsmanna í kjölfarið.

Karfan.is greinir frá að forsvarsmenn liðanna hafi komið á milli stuðningsmannanna og komið í veg fyrir eiginleg slagsmál.

Miðillinn birti myndbönd af hitanum í stúkunni eftir leik sem má sjá með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert