Ísland átti ekki að mæta Kósóvó

Gylfi Þór Sigurðsson í mikilli baráttu gegn Kósóvó í fyrri …
Gylfi Þór Sigurðsson í mikilli baráttu gegn Kósóvó í fyrri leik liðanna í mars. AFP

Þegar dregið var í riðla fyrir undankeppni HM í knattspyrnu leit ekki út fyrir að Ísland myndi leika síðasta leikinn í riðlinum gegn Kósóvó. Upphaflega voru eingöngu fimm lið í riðlinum og samkvæmt þeim áætlunum hefði undankeppni Íslands lokið með leik í Tyrklandi.

Kósóvó var á síðasta ári samþykkt sem 210. aðildarsamband Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, og var bætt í I-riðil undankeppninnar, riðil Íslands, í júní, tveimur mánuðum áður en undankeppnin hófst. 

Kósóvó gat ekki verið með Serbum í riðli

Sex lið voru í öllum riðlum nema tveimur, I og H-riðli, en auk Kósóvó var Gíbraltar bætt við undankeppnina. Bosnía og Serbía eru meðal liða í H-riðlinum en það var metið svo að ekki væri stætt á því að Kósóvó myndi mæta Serbum í undankeppninni. Þess vegna lenti liðið með Íslandi í riðli.

Líflegir stuðningsmenn á Kósóvó í áhorfendastúkunni.
Líflegir stuðningsmenn á Kósóvó í áhorfendastúkunni. AFP

Snemma á árinu hafnaði Alþjóðaíþróttadómstóllinn kröfu Serbíu um að Kósóvó yrði neitað um aðild að Evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA. Sambandið samþykkti Kósóvó í júní í fyrra en Serbía fór fram á að aðild Kósóvó yrði afturkölluð. 

Kósóvó lýsti yfir sjálf­stæði frá Serbíu hinn 17. fe­brú­ar 2008, en það var mjög í óþökk Serba sem líta á Kósóvó sem hluta af sjálf­stjórn­ar­héraði inn­an Serbíu.

Óvíst með þátttöku fram á síðustu stundu

Fyrir fyrsta leik Kósóvó í undankeppninni, gegn Finnlandi fyrir rúmu ári, var óvíst með þátttöku sex leikmanna liðsins fram á leikdag. Ástæðan var sú að leikmennirnir höfðu leikið landsleik með öðrum þjóðum og Alþjóðaknattspyrnusambandið þurfti að úrskurða um hvort þeir mættu leika með Kósóvó.

Allir fengu þeir leikheimild á síðustu stundu en FIFA hef­ur gefið út þá meg­in­reglu að öll­um ríkis­borg­ur­um Kósóvó sé heim­ilt að sækja um leik­heim­ild með liðinu að und­an­skild­um þeim sem léku með öðrum þjóðum í Evr­ópu­mót­inu sem fram fór í Frakklandi árið 2016. 

Nú rúmlega ári síðar lýkur fyrstu undankeppni Kósóvó á Laugardalsvelli í kvöld en flautað verður til leiks klukkan 18.45.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert