Knattspyrnudeild Víkings hefur komist að samkomulagi við Davíð Örn Atlason og Erling Agnarsson um tveggja ára framlengingu á samningum þeirra hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Víkingum í kvöld.
Davíð sem fæddur er 1994 á að baki 58 leiki í deild og bikar fyrir félagið og hefur í þeim skorað 3 mörk. Erlingur er fæddur 1998 og á að baki 26 leiki og eitt mark fyrir Víking í deild og bikar.
Þeir eru báðir uppaldir hjá Víkingi og lýsir knattspyrnudeildin mikilli ánægju með að þessir mikilvægu leikmenn hafi framlengt samninga sína.