Veigar vill ljúka ferlinum í Víkinni

Veigar Páll Gunnarsson fór til Víkings R. í láni frá …
Veigar Páll Gunnarsson fór til Víkings R. í láni frá FH. mbl.is/Kristinn Magnússon

Veigar Páll Gunnarsson vonast til þess að semja við Víking Reykjavík á næstunni og vera áfram hjá liðinu á næstu leiktíð.

Veigar Páll var í láni hjá Víkingi frá FH síðari hluta tímabilsins en er nú samningslaus. Hann kom við sögu í sjö leikjum með Fossvogsliðinu og sér fyrir sér að ljúka ferli sínum sem knattspyrnumaður hjá liðinu.

„Mig langar að taka eitt tímabil í viðbót sem leikmaður og þá er langlíklegast að ég verði þá í Víking[i]. Það er eina liðið sem ég er í viðræðum við. Ég var ótrúlega sáttur í Víking[i] og það er björt framtíð þar. Ég er að vona að þetta leysist og ég geti orðið leikmaður Víking[s] sem fyrst,“ sagði Veigar við fotbolti.net í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert