Hann var fljótur að heilaþvo okkur

Jón Daði Böðvarsson, Birkir Már Sævarsson og Lars Lagerbäck á …
Jón Daði Böðvarsson, Birkir Már Sævarsson og Lars Lagerbäck á blaðamannafundi í Frakklandi sumarið 2016. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Það tók smá tíma að innprenta það í menn en Lars [Lagerbäck] var fljótur að heilaþvo okkur eins og hefur oft verið talað um,“ sagði knattspyrnumaðurinn og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson, í Fyrsta sætinu, íþróttahlaðvarpi mbl.is og Morgunblaðsins, þegar rætt var um íslenska karlalandsliðið í fótbolta.

Sama hver mótherjinn var

Birkir Már, sem er 38 ára gamall, lagði landsliðsskóna á hilluna árið 2021 en hann var hluti af gullaldarliði Íslands sem fór á tvö mót og lék alls 103 A-landsleik fyrir Ísland.

„Hugsunarhátturinn var sá að við værum að fara vinna þennan leik, sama hver mótherjinn var,“ sagði Birkir Már.

„Eftir nokkra leiki var þetta orðið innstimplað í okkur og það kom enginn á Laugardalsvöll og gerði eitthvað án þess að þurfa hafa mjög mikið fyrir því,“ sagði Birkir Már meðal annars.

Umræðan um komandi landsleiki og íslenska karlalandsliðið hefst á 7. mínútu en hægt er að hlusta á umræðuna í heild í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan. Þátt­ur­inn er einnig aðgengi­leg­ur á öll­um helstu hlaðvarps­veit­um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert