Donadoni ver sóknarmenn sína

Roberto Donadoni, þjálfari ítalska knattspyrnulandsliðsins. stækka

Roberto Donadoni, þjálfari ítalska knattspyrnulandsliðsins. Reuters

Enginn af sóknarmönnum ítalska landsliðsins hefur skorað mark það sem af er EM í knattspyrnu. Roberto Donadoni hefur fjóra sóknarmenn í landsliðshóp sínum, Luca Toni, Alessandro Del Piero, Antonio Cassano og Antonio Di Natale.

„Ég stend í þeirri meiningu að sóknarmenn liðsins séu dauðþreyttir eftir langt og strangt tímabil með félagsliðum sínum og því sé kannski auðveldara fyrir varnarmenn að skora mörk fyrir okkur á þessu móti,“ sagði hinn 44 ára gamli Donadoni á fréttamannafundi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

finnur.is