EM: Mjög ósáttur við að tapa

Dóra María Lárusdóttir átti einna bestan leik íslensku leikmannanna í kvöld og á hér í ... stækka

Dóra María Lárusdóttir átti einna bestan leik íslensku leikmannanna í kvöld og á hér í höggi við Anneli Giske. mbl.is/Golli

„Mér fannst við spila seinni hálfleikinn mjög vel, við lögðum allt í hann og ég er mjög ósáttur við að tapa þessum leik," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari Íslands eftir 0:1 ósigur gegn Noregi í Lahti í kvöld. Úrslitin þýða að Ísland á ekki lengur möguleika á að komast í 8-liða úrslitin.

"Við byrjuðum leikinn mjög vel og fengum tvö góð færi til að skora strax, Hólmfríður komst ein í gegn og Dóra María skaut í stöng. Síðan fengum við á okkur mark á versta tíma, á síðustu sekúndunni í fyrri hálfleik, og það var talsvert högg fyrir liðið. En ég vil hrósa mínum leikmönnum fyrir það að rífa sig upp og spila mun betur en í fyrri hálfleiknum. Við settum norska liðið undir talsverða pressu en sköpuðum okkur ekki nægilega opin færi," sagði Sigurður Ragnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, EM í fótbolta — Fleiri fréttir

Fimmtudaginn 5. apríl

Miðvikudaginn 4. apríl

Þriðjudaginn 3. apríl

Mánudaginn 2. apríl

Sunnudaginn 29. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 11. október

Miðvikudaginn 8. september

Sunnudaginn 7. febrúar

Föstudaginn 11. september

Fimmtudaginn 10. september

Mánudaginn 7. september

Sunnudaginn 6. september

Föstudaginn 4. september

Fimmtudaginn 3. september

Mánudaginn 31. ágúst

Sunnudaginn 30. ágúst

Laugardaginn 29. ágúst

Föstudaginn 28. ágúst

Fimmtudaginn 27. ágúst


finnur.is