Ragnar Sigurðsson átti frábæra tæklingu á Jamie Vardy, sóknarmann Englendinga, í 16 liða úrslitum Evrópumótsins. Tæklingin minnti á aðra ótrúlega björgun Alexanders Petterssonar.
Þá fæddist frasinn: „Hvaðan kom hann? Hvert er hann að fara? Hvað er hann?“ sem íþróttafréttamaðurinn skeleggi, Adolf Ingi Erlingsson, gerði ódauðlegan.
Mbl.is ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og setja undirleik Adolfs við tæklingu Ragnars.