Liverpool lagði Chelsea 2:0

Hart barist í leik Liverpool og Chelsea á Anfield í …
Hart barist í leik Liverpool og Chelsea á Anfield í dag. Reuters

Liverpool vann langþráðan og sannfærandi sigur á Englandsmeisturum Chelsea á Anfield í dag. 2:0 urðu lyktir leiksins og skoruðu Dirk Kuyt og Jarmaine Pennant mörkin á fyrstu 18. mínútum leiksins. Fyrir leikinn hafði Chelsea unnið fimm síðustu viðureignir liðanna í úrvalsdeildinni og Liverpool hafði ekki haft betur gegn Chelsea á Anfield síðan í október 2002.

Chelsea er því áfram sex stigum á eftir Manchester United sem mætir Arsenal á morgun en Liverpool treysti stöðu sína í þriðja sætinu og er nú fimm stigum á eftir Chelsea.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert