Arsenal í úrslit deildabikarsins

Philippe Senderos varnarmaður Arsenal í baráttunni við Robbie Keane.
Philippe Senderos varnarmaður Arsenal í baráttunni við Robbie Keane. reuters

Arsenal tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninnar þegar liðið sigraði Tottenham, 3:1, í framlengdum leik á Emirates vellinum. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1, en liðin skildu jöfn, 2:2, í fyrri leiknum á White Hart Lane. Emannuel Adebayor, Jeremie Aliadiere og Thomas Rosicky gerðu mörkin fyrir Arsenal en Mido skoraði mark Tottenham. Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleik á Þúsaldarvellinum í Cardiff 25. febrúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert