Deco vill fá Ronaldo til Barcelona

Cristiano Ronaldo í leik með Portúgölum gegn Brasilíu á Emirates …
Cristiano Ronaldo í leik með Portúgölum gegn Brasilíu á Emirates Stadium á dögunum. Reuters

Portúgalski landsliðsmaðurinn Deco sem leikur með Evrópu-og Spánarmeisturum Barcelona segir að Barcelona sé kjörið lið fyrir Cristiano Ronaldo að ganga til liðs við en Ronaldo, sem leikur með Manchester United, hefur á undanförnum vikum verið orðaður við spænsku stórliðin Barcelona og Real Madrid. Forráðamenn United segja hins vegar ekki koma til greina að láta hann fara.

,,Ég myndi svo sannarlega vilja fá Ronaldo til Barcelona og ég tel það kjörið félagið fyrir hann að spila með. Ég veit að það eru stórlið á höttunum eftir honum en ég held að Barcelona myndi henta honum betur en Real Madrid," sagði Deco við spænska útvarpsstöð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert