Ferdinand ekki með United og landsliðinu?

Rio Ferdinand er tæpur vegna brákaðra rifbeina.
Rio Ferdinand er tæpur vegna brákaðra rifbeina. Reuters

Tvísýnt er hvort Rio Ferdinand geti leikið með Manchester United gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun og gegn Middlesbrough í bikarkeppninni á mánudagskvöldið. Hann er með brákuð rifbein frá fyrri bikarleiknum gegn Middlesbrough um síðustu helgi.

Fari svo að Ferdinand verði að hætta við þátttöku í þessum tveimur leikjum er ólíklegt að hann geti í framhaldinu af því spilað með enska landsliðinu gegn Ísrael og Andorra í undankeppni EM.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert