Crouch með þrennu í 4:1 sigri Liverpool á Arsenal

Peter Crouch fagnar einu af þremur mörkum sínum á Anfield …
Peter Crouch fagnar einu af þremur mörkum sínum á Anfield í dag. Reuters

Peter Crouch var maður leiksins þegar Liverpool burstaði Arsenal, 4:1, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram á Anfield. Crouch, sem kom inn í liðið eftir meiðsli, skoraði þrennu í leiknum, hefur þar með skorað 9 mörk í úrvalsdeildinni, og Daninn Daniel Agger skoraði eitt. Mark Arsenal skoraði Frakkinn William Gallas.

Með sigrinum komst Liverpool uppfyrir Arsenal í þriðja sætið. Liverpool hefur 57 stig en Arsenal hefur 55 en á leik til góða. Fyrir leikinn í dag hafði Arsenal lagt Liverpool að velli í þrígang þar af tvívegis á Anfield, í bikarkeppninni og deildabikarkeppninni.

Þetta var annar tapleikur Arsenal í röð og báðir litu þeir dagsins í bítlaborginni en fyrir landsleikjafríið tapaði Arsenal fyrir Everton á Goodison Park, 1:0.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert