Man.Utd. komið í 3:0

Wayne Rooney fagnar marki sínu gegn Roma í kvöld.
Wayne Rooney fagnar marki sínu gegn Roma í kvöld. Reuters

Leikmenn Manchester United fara á kostum gegn Roma á Old Trafford og eftir 19 mínútna leik er staðan orðin, 3:0. Alan Smith skoraði annað markið á 16. mínútu og tæpum þremur mínútum síðar bætti Wayne Rooney við þriðja markinu. Hjá Valencia og Chelsea er enn markalaust og verði það úrslitin kemst Valencia áfram á útimarkareglunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert