Ballack ekki með gegn Liverpool

Michael Ballack leikur ekki með Chelsea gegn Liverpool á þriðjudaginn.
Michael Ballack leikur ekki með Chelsea gegn Liverpool á þriðjudaginn. Reuters

Michael Ballack verður ekki með Chelsea gegn Liverpool í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á þriðjudaginn. Forráðamenn Chelsea greindu frá því í dag að Ballack hefði gengist undir aðgerð vegna meiðsla á ökkla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Newcastle um síðustu helgi. Þá verður Ricardo Carvahlo heldur ekki með en hann meiddist á hné í leiknum við Bolton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert