Mourinho: Ber ekki slæmar tilfinningar til Neville

Phil Neville númer 18 skorar í eigið mark í leiknum …
Phil Neville númer 18 skorar í eigið mark í leiknum gegn Manchester United. Reuters

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segist ekki bera slæmar tilfinningar til Phil Neville eftir að hann skoraði sjálfsmark gegn sínum gömlu félögum í Manchester United á Goodison Park í gær. Neville sem er uppalinn hjá Manchester United og lék í mörg ár með því jafnaði metin 2:2 og United náði síðan að bæta við tveimur mörkum.

„Ég hef ekki séð markið en ég hef enga ástæðu til þess að halda að eitthvert óhreint mjöl hafi verið í pokahorninu," sagði Mourino en hans menn eru nú fimm stigum á eftir United í kapphlaupinu um enska meistaratitilinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert