Tveir Ungverjar til Liverpool

Krisztian Nemeth.
Krisztian Nemeth. Heimasíða Liverpool

Liverpool hefur gengið frá kaupum á tveimur ungverskum leikmönnum. Þeir eru Krisztian Nemeth, 18 ára gamall framherji, og Andras Simon, 17 ára gamall framherji og miðjumaður. Báðir koma þeir frá MTK Hungaria og þyka með efnlilegustu leikmönnum landsins en báðir hafa þeir leikið með yngri landsliðum Ungverjalands.

Þeim er ætlað að spila með varaliði félagsins á næstu leiktíð en Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool sér þá fyrir sér sem menn framtíðarinnar hjá liðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert