Smith skoraði í sínum fyrsta leik með Newcastle

Alan Smith byrjar vel með Newcastle.
Alan Smith byrjar vel með Newcastle. AP

Alan Smith tryggði Newcastle sigur í sínum fyrsta leik fyrir félagið þegar Newcastle sigraði ítalska liðið Sampdoria, 1:0, í æfingaleik á St.James Park í dag. Smith, sem gekk til liðs við Newcastle á föstudaginn, skoraði sigurmarkið á 60. mínútu með skalla eftir hornspyrnu frá Geremi en Smith þótti skara frammúr í leiknum og var valinn maður leiksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert