Benítez: Sanngjörn úrslit

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool.
Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool sagði úrslitin á Fratton Park í dag í leik sinna manna gegn Portsmouth sanngjörn en liðin skildu jöfn, 0:0, þar sem Jose Reina varði vítaspyrnu frá Kanu í fyrri hálfleik.

,,Eftir landsleikjatörn er erfitt að velja liðið þar sem maður hefur lítinn tíma til að sjá leikmennina á æfingum. Mér fannst við betri aðilinn í fyrri hálfleik og réðum ferðinni en seinni hálfleikurinn var opnari þar sem bæði lið fengu fín færi. Frá mínum bæjardyrum séð þá fannst með úrslitin sanngjörn. Ég er ekki viss um að þetta hafi verið vítaspyrna en ég ætla ekkert kvarta yfir því núna," sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert